Dags: 31.08.2008 22:46
Eins og rætt var á foreldrafundinum síðastliðinn Laugardag er núna búið að setja niður æfingtöflu fyrir árið og munum við reyna í lengstu lög að halda okkur við hana. Auðvita geta orðið einhverjar tilfærslur, t.d. ef það þarf að taka æfingartíma undir leiki en þá verður viðeigandi flokkum bættur upp tíminn.
Hægt er að nálgast æfingatöfluna með því að smella hérna.
Núna er líka stefna Hokkídeildar SR komin á vefinn auk þess sem hægt er að nálgast upplýsingar sem Richard tók saman um skyldur og verkefni liðstjóra með því að smella hérna.
Einnig viljum við minna alla á að það þarf að skrá alla iðkendur og einnig borga æfingargjöldin.
Hægt er að hafa samband við skrifstofuna með því að senda póst á ishokki@skautafelag.is, hringja í síma 553-3838.