Fréttir

Total items: 1194

Richard Tähtinen, nýr yfirþjálfari íshokkídeildar SR

Dags: 17.05.2008 12:14


Richard Tähtinen, sem íslenskum hokkímönnum er að góðu kunnur, hefur verið
ráðinn yfirþjálfari íshokkídeildar SR frá og með 1. ágúst næstkomandi.

Hann er 27 ára gamall og hefur mikla reynslu, bæði sem þjálfari og leikmaður.

Að auki þekkir hann vel leikmenn og allar aðstæður hér á landi því hann hefur
verið aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins og lék með SR á árunum 2002-2004.
Hann er metnaðarfullur og gríðarlega áhugasamur um að byggja upp íshokkídeild SR
og því erum við sannfærð um að ráðning Richards verði félaginu mikil lyftistöng.

Richard hefur einnig annars konar tengsl við Ísland því hann er hálf-íslenskur
og verður því svo sannarlega á heimavelli hjá okkur í SR. Við bjóðum hann
velkominn til starfa og hlökkum til að mæta vetrinum með hann í fararbroddi
og sjáum fram á skemmtilegan vetur.