Fréttir

Total items: 1194

LOKAHÁTÍÐ Á MORGUN Þriðjudaginn 22.04

Dags: 21.04.2008 11:12


Nú líður senn að LOKUM ÍSTÍMA hjá okkur í íshokkí, ÍBR og Skautahöllin taka niður svellið 4. Maí.

Í dag 21. Apríl eru æfingar samkvæmt stundarskrá en Á MORGUN höldum við LOKAHÁTÍÐ fyrir ALLA  aldurshópa og AÐSTANDENDUR.
FJÖRIÐ BYRJAR KL.17:00  á ísnum; þrautir, skotkeppni og almennt chillað á ísnum.
Foreldrum gefst kostur á að sýna listir sínar fyrir afkvæmin vonandi sér og öðrum til skemmtunar.

Við munum bjóða upp á grillaðar pylsur og gos. Þessi hátíð er ekki síður kveðjuhátið krakkanna fyrir Ed, hann fer af landi brott alfluttur 2. Maí.
Mun honum verða afhent sameiginleg gjöf í nafni allra barnanna, en samt er hverjum og einum frjálst að gefa honum sína persónulegu gjöf ef  þið viljið.
Við fullorðna fólkið stefnum á að kveðja Ed 30. apríl, því hann á sextugs afmæli þann 1. Maí.

Veitt verða 3 BIKARVERÐLAUN  í hverjum flokki (ath. að  4. og 5. fl. verða veitt verðlaun miðað við skiptingu flokkanna í vetur)
-   Besti leikmaður
-   Mestu framfarir
-   Duglegastur


Við bjóðum foreldra sérstaklega velkomna frá ÖLLUM flokkum, endilega að skella sér með á hátíðina.

Frjálsir skautatímar verða svo síðustu vikuna okkar, sjá stundarskrá á vefsíðu.
Í maí munu verða fastir æfingatímar í þreki og kylfutækni í umsjá okkar frábæru íslensku þjálfara, verða þeir tímar settir inn á vefsíðuna.

Í SUMAR;
Í sumar ætla stjörnubræðurnir knáu Gauti og Egill að vera með ítarleg námskeið í kylfutækni,
þeir ætla að kenna strákunum trikkin í bransanum sem er jafn mikilvægt að kunna og skauta! Hefjast námskeiðin 10. Júní og standa yfir í 6 vikur samfellt.
Hvert námskeið tekur 2 vikur en hægt er að taka þau í framhaldi af hvert öðru og bætist þá við kunnáttuna á hverju námskeiði.
Sem sagt klæðskerasniðið fyrir hvern og einn. (auglýst síðar)
Einnig er áhugi að halda námskeið á ís strax eftir Verslunarmannahelgi. ...ALLT nánar um það seinna.

HOKKÍKVEÐJA
Stjórn SR.