Dags: 17.03.2008 12:25
Nú hefur verið opnuð blogg síða á mogga-blogginu og er hún liður í að
skapa meiri umræðu um íshokkí hvar sem það er spilað í heiminum.
Á þessa síðu skrifa nokkrir áhugamenn um hokkí eða einsog stendur á síðunni
"Höfundar eru áhugamenn um íshokkí og skrifa um íshokkí á hinum ýmsu stöðum í
heiminum.
Hafirðu áhuga á að gerast höfundur þá sendu póst á ihi@ihi.is"
Mbl.is er fjölsóttasta síða á Íslandi í dag og því teljum við marga kosti við
að fara þar inn. slóðin er: http://www.ishokki.blog.is/blog/ishokki/
Jafnframt bendum við öllum foreldrum og forráðamönnum að ykkur er
frjálst að senda okkur greinar til að birta á vef okkar. Hægt er að
senda á: thorsjo@skautafelag.is
Við óskum SÉRSTAKLEGA eftir áhugasömum pennum til að skrifa um
framgang leikja og úrslit iðkenda í ÖLLUM flokkum. Það er mjög
hvetjandi og gaman fyrir strákana okkar að lesa um sína frammistöu,
og að við sem foreldrar fylgjumst með og höfum áhuga á þeirra sporti.
Við megum ekki gleyma því að við öll = FORELDRAR, vinnum
sjálfboðaliðastörf íþróttinni til framdráttar, og því meiri áhuga og
sameiningu sem við sýnum í orði og verki - því sterkari stöndum við.