Dags: 15.03.2008 20:55
Leikur SR og SA var að hefjast og SA skoraði fyrsta markið á annari mínútu, markið skoraði Gunnar Darri Sigurðsson eftir stoðsendingu frá Jóhanni Leifssyni. SR skorar sitt fyrsta mark á tíundu mínútu þar var á ferðinni Styrmir Friðriksson eftir stoðsendingu frá Hirti S. Hilmarssyni. Fyrsti leikhluti búinn og staðan 1 - 1. Staðan eftir annan leikhluta 1 - 1. Egill Þormórðsson skorar annað mark SR eftir stoðsendingu frá Pétri Maack á fertugustu og fjórðu mínútu. Björn Sigurðsson skorar þriðja mark SR eftir stoðsendingu frá Styrmi Friðrikssyni á fertugustu og sjöttu mínútu. Annað mark SA skorar Orri Blöndal án stoðsendingar á fimmtugustu og fyrstu mínútu. Þriðja mark SA skora Orri líka án stoðsendingar á fimmtugustu og sjöttu mínútu. Lokastaðan 3 - 3, jafntefli. Staðan er þá að SA er með 21 stig og SR 18, SR á síðan tvo leiki við Björninn til góða þannig að ef þeir leikir vinnast báðir verður SR Íslandsmeistari í 2. fl. hv