Fréttir

Total items: 1194

Unglingalandsliðið U-18

Dags: 15.03.2008 11:44


Eins og þeir sem hafa skoðað síðu ÍHÍ undanfarið vita fór unglingalandsliðið til Tyrklands í upphafi mars til að taka þátt í HM. Það landslið er að spila í 3. deild HM, gekk vel og lenti þar í öðru sæti á eftir Serbum. Þetta þýðir að Serbar fara upp í 2. deild. Egill Þormóðsson leikmaður í SR var valinn sóknarmaður mótsins og er hann vel að því kominn, enda öflugur leikmaður.   hv