Dags: 14.03.2008 16:13
Um helgina fara fram tveir leikir í 2. flokki, milli SR og SA. Þetta eru tveir síðustu leikir SA en SR á eftir að spila tvo leiki við Björninn, staðan er þannig að SA er efst með 19 stig, SR með 16 stig og Björninn rekur lestina með 6 stig. Ef SA vinnur báða leikina um helgin þá eru þeir búnir að tryggja sér Íslandsmeistartitil í þessum flokki, ef hins vegar SR vinnur annan leikinn þá á SR möguleika með því að vinna báða leikina við Björninn. Þannig að þessir leikir núna verða í rauninni úrslitaleikir í 2. flokki. Þessi flokkur sem í daglegu tali er kallaður 2. flokkur er í rauninni 1. og 2. flokkur steyptir saman, þetta var ákveðið að gera fyrir nokkru síðan þar sem ekki hafði verið grundvöllur til að vera með 1. flokk sér. Landsbankamótið hjá 5. til 7. flokki fer svo fram í Egilshöll um helgina eins og hefur komið fram hér áður. Í þessum flokkum hefur verið stöðug fjölgun í vetur og hvert mótið fjölmennara þeim sem á undan hafa verið, þannig að það verður gaman að sjá hvort fjölgunin heldur áfram núna. Að lokum viljum við aftur minna á að alla æfingar sem og skautaskólinn falla niður milli 10:30 og 13:00 á laugardaginn vegna æfingaleiks kvennalandsliðsins. hv