Fréttir

Total items: 1194

Bikarmót 5.- 6. og 7.flokks á Akureyri, 22.-24 febrúar 2008

Dags: 18.02.2008 09:43


BIKARMÓT Á AKUREYRI, 22.-24 febrúar 2008

 
Kæru foreldrar og forráðamenn.
Mikill og góður hópur fer norður heiðar - sem er afskaplega ánægjulegt, við erum enn fleiri heldur en í nóv. á Brynjumótinu,  Við verðum tæplega sjötíu manns!! Þetta er mikil og stór helgi á Akureyri, fólk á skiðum og stór boltamót barna.   Þar sem við gátum ekki staðfest gistingu svo snemma, sem um miðjan janúar fyrir allan þennan fjölda, höfum við aðeins pláss fyrir 51 í Gistiheimilinu Stórholti 1. Þvi verður að gista á tveimur stöðum. Gist verður einnig í gistiheimlinu Súlum, Þórunnarstræti 93. Sökum þessa mikla fjölda þarf eflaust líka að taka 2 rútur, þar sem mikill farangur fylgir hokkíspilurum ?
Við biðjum alla foreldra og þátttakendur að sýna þessu skilning og jákvæðni, besta fréttin er hversu mikil vakning hefur orðið í íshokkí. Bíður okkar mikið ævintýri og fjör næstu helgi.

Leikjaplan.
Fyrstu leikir byrja á laugardagsmorgni (á bilinu 8 til 9), þá er spilað fram eftir degi. Mótinu lýkur svo um hádegi á sunnudag. Leikjadagskráin kemur í vikunni.

Brottför og heimkoma
Mæting föstud. kl. 13.30 Skautahöllinni í Laugardal.
Komutími sunnudag. 20-21 Skautahöllinni í Laugardal.


Foreldrar þurfa að yfirfara allan hokkíbúnað keppenda fyrir ferðina. Athuga hvort skrúfur í hjálmum séu lausar eða vanti, skautar skerptir, kylfuteip og þeir sem nota legghlífateip. Aukanærföt og handklæði í hokkítöskunni.   AÐEINS AÐ PAKKA NIÐUR ÞVÍ SEM VIÐKEMUR HÓKKÍ Í HOKKÍTÖSKURNAR.

Verð
Fyrir þá sem fara með rútunni og eru í sameiginlegu gistingunni, er séð um allt sem tengist mat.
áætlað verð kr. 12.000-, það er allt innifalið í því.  Á þriðjudag kemur staðfest verð.
Systkinaafsláttur 50% á annað.
Foreldrar sem fara með í rútu, gistingu og öllu eru 4.500. þús kr. sama verð er fyrir þá sem bara í gistingu.


Foreldrar athugið að ferðin er á vegum SR en allt vinnuframlag er foreldranna.
NÁNARI FRÉTTIR KOMA Á ÞRIÐJUDAG. FYLGJAST VEL MEÐ PÓSTI.