Dags: 16.01.2008 15:00
Í ár munu fjölmörg íþróttafélög undir forystu Íþróttabandalags Reykjavíkur og
með stuðningi Reykjavíkurborgar standa að alþjóðlegu íþróttamóti. Síðustu ár hafa
sundfélagið Ægir og frjálsíþróttadeild ÍR staðið að alþjóðlegu mótahaldi í janúar
og hefur það mótahald vaxið og dafnað vel. Svo vel hefur gengið að ákveðið hefur
verið að ganga skrefi lengra og fá fleiri íþróttafélög til þess að halda mót á
sama tíma. Samtals verður keppt í 9 íþróttgreinum og því verður landsmönnum öllum
boðið upp á fjölbreytta íþróttaveislu þar sem yfir 2000 keppendur munu taka þátt.
Stefnt er að því að innan 5 ára verði allt mótahaldið með alþjóðlegum hætti þar
sem íþróttamenn geta unnið sig inn á stórmót eins og Ólympíuleika og heimsmeistaramót.
Íþróttabandalag Reykjavíkur mun aðstoða við skipulag mótsins en þess má geta
að ÍBR sá um framkvæmd á Alþjóðaleikum Ungmenna 2007(ICG 2007) og er einnig framkvæmdaaðili
að Reykjavíkurmaraþoni Glitnis. Hvoru tveggja íþróttaviðburðir sem drógu þúsundir
útlendinga til landsins og vöktu mikla athygli.
Það verður mikið um dýrðir í Laugardalnum á meðan þessi íþróttaveisla fer fram
og standa vonir til að fjölskyldur fjölmenni í dalinn til þess að taka þátt í
skemmtuninni.
MUNIÐ Áhorfendur eru velkomnir á opnunar- og lokahátíð og á allar keppnisgreinar.
Hægt er að nálgast dagskrá mótsins hérna