Fréttir

Total items: 1194

SA -SR í dag

Dags: 29.12.2007 16:30


Kl. 18:00 í dag eigast við SA og SR á Akureyri. Þessi leikur er sérstakur að sumu leyti, hingað til hefur ekki tíðkast að spila milli jóla og nýárs, það á eftir að koma í ljós hvernig jólasteikin verður á svellinu, hvorugt liðið spilar með útlendinga og SA hefur í þessum leik á að skipa tveimur leikmönnum sem búa í Danmörku, Jón Inga og Ingvar Þór. Það verða settar inn nánari fréttir af gangi mála eftir því sem líður á. Líka má benda á útsindinguna á netinu http://www.ishockey.dk/default.html.   hv