Dags: 13.05.2007 20:48

Í dag áttust við Rússar og Svíar um bronsið í Heimsmeistaramóti karla í íshokkí. Rússar voru þar yfirsterkari og unnu leikinn sannfærarndi 3 -1. Svíar voru með frekar máttlaust lið skipað lýtt þekktum leikmönnum sem spiluðu allir í heimalandinu Svíþjóð. Erfitt er að lá þeim þar sem þeirra helstu stjörnur voru annaðhvort nýdottnar úr "play-off" í NHL í Bandaríkjunum, og því dauðþreyttar og ekki með landsliðsmálin efst á lista, eða ennþá að keppa um Stanley-Bikarinn og áttu því ekki möguleika á því að koma til Moskvu þar sem mótið var haldið. Síðar um daginn áttust við Kanadamenn og Finnar um gullið. Kanadamenn voru strekari allann leikinn og áttu Finnar fá færi sem voru frekar veigalítil og bragðlaus. En það verður að segja þeim til varnar að þeirr áttu við ofurefli að etja þar sem þeir Staal bræður, Rick Nash og Mattieu Lombardi fóru mikinn allan leikinn og áttu Finnar fá svör við hárbeittum leik þeirra. Heimsmeistarastitillinn er því farinn til Kanada í 24 skiptið. Hægt er að sjá nánar um leikina á www.iihf.com