Dags: 11.05.2007 21:50
Á morgun laugardag verður sýnt beint frá undanúrslitaleikjum í HM í íshokkí karla. Mótið er haldið í Moskvu um þessar mundir og verða það Svíar, Rússar, Kanadamenn og Finnar sem munu berjast um Heimsmeistaratitillinn þetta árið. Fyrri leikurinn sem verður sýndur á morgun verður kl.13:15 og verða þar Rússar og Finnar sem berjast um sæti í úrslitaleiknum sem verður á sunnudag. Seinni leikurinn verður svo kl.15:30 og þar takast á Kanada og Svíþjóð.