Dags: 25.04.2007 12:05

Í kvöld ræðst það hver verður krýndur Íslandsmeistari í íshokkí karla. Baráttan hefur verið mikil í undanförnum leikjum og var síðasti leikur liðann sá mest spennandi leikur sem áhorfendur hafa séð í lengri tíma... tja jafnvel alveg síðan 2001 eða þaðan af lengra. Bæði lið hafa unnið sína útileiki sem er sérstakt og hefur SR-átt verra gengi að fagna, þ.e.a.s fengið á sig fleiri mörk á heimavelli, heldur en SA. SR-ingar hafa hinsvegar sýnt það að þeir eru betra liðið þegar kemur að því að spila gott hokký þar sem það sýndi góðan aga og herkænsku í leik sínum gegn SA norðan heiða núna á dögnumum og héldu hreinu í síðustu lotunni þrátt fyrir að vera oft manni og jafnvel tveimur mönnum undir. SR-ingar hafa undirbúið sig vel fyrir kvöldið og hafa sumir farið í sér-meðferð hjá hinum knáa Markúsi (líkamsræktar-þjálfara með meiru) núna síðar í dag til að vera í sínu allra besta formi fyrir leik kvöldsins. Þetta verður gríðarlega spennandi og skemmtilegt, án efa. Allir eiga að mæta á leikinn í kvöld og hvetja sína menn áfram Áfram SR !!