Fréttir

Total items: 1194

Á brattann að sækja fyrir SR-inga

Dags: 22.04.2007 22:58


SR-ingar áttu í miklum erfiðleikum með að koma sér af stað í leik þeirra gegn SA í gærkvöld. Gestirnir komu betur skipulagðir og agaðri til leiks heldur en heimamenn sem héldu að sigurinn væri nánast vís og það væri nánast formsatriði að klára þessa úrslitakeppni. SA-menn gerðu nánast út um leikinn strax í fyrsta leikhluta en þeir náðu að skora 5 mörk án þess að heimamenn næðu að svara fyrir sig eða hvað þá að verjast sóknum SA-manna. Eitthvað batnaði staðan í öðrum leikhluta en þá náðu SR-ingar að skora eitt mark eftir mikið harðfylgi. SA-menn náðu líka að svara fyrir sig og lotan fór 1 - 1. Í lok þriðja leikhluta virtist sem SR-ingar fóru að gera rétta hluti og spila hokkí og uppskáru 5 mörk á mettíma og allt virtist ganga SR-ingum í hag. En þrátt fyrir góð tilþrif náðu SR-ingar ekki að ná SA-mönnum og endaði lotan 5 - 4 og leikurin í heild endaði með sigri gestanna 6 - 10.

Næsti leikur verður norður á Akureyri á morgun og hefst hann kl.18:00 og verður það án efa spennandi leikur þar sem núna er að duga eða drepast fyrir SR-inga. Allir þeir sem hafa áhuga á íshokkí verða að láta sjá sig í Skautahöllinni á Akureyri þar sem veður án efa fjölmenni á leiknum!!