Fréttir

Total items: 1194

MFL: Fyrsti leikur í úrslitum er í kvöld kl.20:00

Dags: 17.04.2007 00:11


Í kvöld munu SR-ingar taka á móti SA-mönnum í fyrsta leik Úrslitakeppninar í Íslandsmeistaramóti karla í íshokkí. Bæði lið munu tefla fram sínu allra besta liði sem hafa verið að æfa vel undanfarin misseri. SR hefur átt góðu gengi að fagna undanfarin misseri og núna síðast um síðustu helgi þegar SR-ingar fóru mannfáir til Akureyrar og unnu tvo síðustu leikin í deildarkeppninni og unnu þar með heimaleikjaréttinn.
En ekki má gleyma því að SA-menn hafa áður átt við ofurefli etja og náð að vinna úrslitakeppnina með þrautsegju og þrjóstu að vopni. Þannig að þetta verður án efa spennandi úrslitakeppni.
Fyrsti leikur byrjar sem sagt í kvöld kl.20:00 og það eiga allir að mæta og hverja sína menn !!

Áfram SR!!!