Fréttir

Total items: 1194

MFL: Undirmannaðir SR-ingar sigruðu fullmannað SA-lið

Dags: 15.04.2007 14:18


Um helgina öttu kappi SR og SA í meistraflokki. Heimaleikjaréttur í úrslitum og deildameistaratitillinn var í húfi. Fyrir leikinn voru SR-ingar heldur færri en þeir áttu að venjast þar sem Kári Valsson, Úlfar Andrésson, Petr Krivanek, Daniel Kolar og Stefán Hrafnsson voru fjarri góðu gamni, annað hvort vegna meiðsla, leikbanna eða annara anna.
Þrátt fyrir þetta ákváðu þeir SR-ingar sem fóru norður yfir heiðar að bretta upp ermarnar og spíta í lófana og spila hokkí. Þegar komið var norður blasti við fullur leikmannabekkur hjá SA alls 18 manns tilbúnir til að spila og meira að segja var búið að flytja inn 2 hálf-danska leikmenn þá Rúnar F. Rúnarsson (spilaði með SR í fyrra) og Ágúst Ásgrímsson (spiilaði líka með SR í fyrra) í þessa útslitakeppni. Þrátt fyrir þennan gríðarlega liðsmun, þ.e.a.s SR-ingar 13 leikmenn og SA 18 leikmenn, var nokkuð létt og bjart yfir SR-ingarum þegar þeir stigu inná ísinn í fyrsta leikhlutanum í fyrri leiknum (föstudagskvöld).
Í strax í upphafi var greinilegt að bæði lið ætluðu sér stóra hluti í þessum leik enda heimaleikjaréttur í húfi. En ekki virtist SA-menn næðu upp spili því að SR-ingar náðu að stöðvar allar þeirra sóknir strax í fæðingu. SR-ingar léku við hvern sinn fingur og uppskáru 4 mörk gegn engu þeirra norðanmanna. Í öðrrum leikhluta komu SA-menn heldur ákveðnari til leiks og börðust með öllu mætti í alla pekki og uppskáru 3 mörk gegn engu SR-ingar. Staðan orðin því 4 - 3. Í þriðja leikhluta komu SR-ingar klárir í slaginn og börðust sem aldrei fyrr og náðu að setja eitt gott mark um miðbik lotunar og fóru síðan í "dump-the-puck-to-icying" kerfið og héldu forystunni allt til enda. Þessi úrslit komu skemmtilega á óvart og SR var þá búin að tryggja heimaleikjaréttinn í Úrslitum.

... daginn eftir
Daginn eftir (laugardagskvöld) spiluðu þessi lið aftur. En og aftur urður SR-ingar fyrir blóðtöku (og máttu varla við því) þegar Þorsteinn Björnsson ákvað að halda suður til Reykjavíkur til að læra undir próf (svona fyrst að búðið var að tryggja heimaleikjaréttinn þá var það alveg í lagi) og Guðmundur "Varnarjaxl" Björgvinsson varð fyrir því að brjóta skautana sína. En inn í staðinn kom Daniel Kolar í raðir varnarmanna. Hjá SA var hreinlega bætt í þar sem Björn Már, fyrirliði SA, kom aftur til leiks eftir meiðsli og Birkir Árnason a.k.a Bannsi kom líka aftur til leiks eftir veikindi. Þá voru SA-menn orðnir alls 20.... eða svona hér umbil. Staðan fyrir SR var því ekki sérlega beisin við upphaf leiks en SR-ingar náðu að halda aftur af SA-mönnum út lotuna og er því að þakka skynsamri vörn og góðri markvörslu hjá Aron Leví Stefánssyni sen stóð í fjarveru Birgirs Arnar. Í annari lotu náður SR-ingar að skora eftir mikið harðfylgi og staðan orðin því 1-0 fyrir SR-ingum. Um þetta leiti í leiknum tæklaði Todd Simpson, varnarmaður SR, einn leikmanna SA það illa að sá norðlenski vissi hvorki í þennan heim né annan og þótti mjög skrítið að vera niður á skautasvelli. Leikmaðurinn var fluttur uppá spítala með heilahristing og er á batavegi. Todd Simpson fékk brottvísun úr leik fyrir brotið og SR-ingar orðnir manni færri, ekki bara í 5 mínútur heldur einnig það sem eftir lifði leiks. SA-menn höfðu þarna kjörið tækifæri til að jafna leikinn en einhverrahluta vegna gekk þeim ekki að koma pekkinum í netið. Oft mátti litlu muna en góð vörn og frábær markvarsla sá við öllum sóknum SA-manna það skiptið.
Í enda annars leikhluta var Gauta Þormóðssyni vikið af leikvelli fyrir að blóða andstæðing og SR-ingar nú orðnir ansi fámennir bæði inná ís og á varamannabekkinum. Þrátt fyrir þennan missi börðustu SR-ingar skynsamlega og uppskáru eitt mark áður en lotan var úti. Staðan í leiknum orðin 2-0 fyrir SR.
Í þriðja leikhluta fengu SA-menn enn tækifæri til að jafna leikinn þegar SR-ingar voru einum og tveimur manni undir ... en allt kom fyrir ekki nema rétt í enda lotunar náði Ágúst Ásgrímsson að skjóta í gegnum þvöguna inn í markið hjá SR. Staðan orðin því 2-1 fyrir SR og stutt í leikslok. SR-ingar náðu að halda aftur af SA allt til leiksloka og með því uppskar SR annan sigur sinn í röð á SA. Verður þetta að segjast nokkuð góð úrslit fyrir þessa helgi þar sem SR-ingar sýndu að með baráttuviljann og leikgleði á lofti er allt hægt.

Úrslitin á næsta leiti
Leikirnir í Úrslitakeppninni eru sem hér segir:
1. 17.apríl - SR gegn SA í Reykjavík
2. 19.apríl - SA gegn SR á Akureyri
3. 21.aprí - SR gegn SA í Reykjavík

og ef þarf 5 leiki til að ljúka þessari úrslitakeppni..
4. 23.apríl - SA gegn SR á Akureyri
5. 25.apríl - SR gegn SA í Reykjavík.