Dags: 12.04.2007 12:47
Síðustu tveir meistaraflokksleikir fyrir úrslit verða núna um helgina. Eru þetta
leikir á milli SR og SA. Fyrri leikurinn verður spilaður á föstudagskvöldið kl.20
í Skautahöllinni á Akureyri.
SR-ingar eru að vanda borubrattir fyrir þessa leiki einsog aðra. Gengi Meistaraflokks
SR hefur verið upp og niður þetta tímabilið ólíkt síðasta tímabili þar sem SR-ingar
töpuðu einum leik yfir allt tímabilið og úrslit. Hefur það valdið því að Ed Maggiacomo
hefur þurft að aðlaga leik liðsins eftir því. Bæði lið eiga leikmenn í Karlalandsliði
Íslands sem var að koma til landsins frá S-Kóreu nú á dögunum.
Fyrir leikinn eru SR-ingar nokkuð sigurstranglegir þar sem þeir eru með alls
11 landsliðsleikmenn innanborðs og þar meðtalinn landsliðsmarkmanninn Birgir Örn
Sveinsson sem fór á kostum í S-Kóreu og var valinn maður liðsins yfir mótið.
Þó að þessar tölulegu upplýsingar eru afskaplega heillandi þá hefur það sýnt sig
að ekki ber að vanmeta Akureyrarmenn þar sem þeir eru með gott bland af ungum
og efnilegum leikmönnum og eldri leikmönnum sem eru "komnir yfir síðasta söludag",
einsog segir á sasport.is.
Fróðlegt verður að sjá hvort að SR nái að standast væntingar og hvort að SA nái
að veita þeim öfluga keppni núna um helgina.