Dags: 21.03.2007 00:00

Í kvöld munu SRingar taka á móti Birninum úr Grafarvoginum kl.20:30 á heimavelli SR-inga, Skautahöllinni í Laugardal. Skemmst er frá því að segja að SR-ingar hafa ekki spilað marga leikina undanfarin misseri þar sem ýmiss mót og aðrir viðburðir hafa gert það ókleift að vera með hokkíleiki á dagskrá. En hvað sem því líður verður án efa skemmtilegt að fylgjar með þessum liðum spila í kvöld. Bæði lið hafa leikmenn innanborðs sem eru nýkomnir frá Kína þar sem þeir tóku þátt í 3.deild Heimsmeistaramótsins í íshokkí. Björninn hefur verið sigursæll í síðusu leikjum og hafa þessir leikir milli þessara liða verið spennandi og skemmtilegir á að horfa. Allir áhugamenn um íshokkí eru hvattir til að mæta í höllina og hvetja sína menn áfram.
Áfram SR!!