Fréttir

Total items: 1194

Danmerkurferð: Ferðasagan í stuttu máli

Dags: 09.03.2007 10:00


iceland2_0571.jpg

Nýverið fóru 3 og 4.flokkur SR til Danmerkur í íshokkí ævintýraferð.  Þeir voru ekki fyrr lenntir en þeir skelltu sér í rútu og beina leið í Skautahöllina hjá Rödovre Mighty Bulls og horfðu á leik Rödovre og Odense Bulldogs sem lauk með sigri Bulldogs 6-5 eftir mikinn átakaleik og framlengingu. 
Liðið fór síðan í Sporthótelið hjá Gladsaxe þar sem allir sváfu eftir viðburðaríkan dag.  Strax morguninn eftir fóru bæði lið á morgunæfingu í Skautahöllinni í Gladsaxe.  Strax eftir æfingu var farið í menningarferð til Kronberg kastala í Helsingör.  Eftir að hafa skoðað sig um í kastalanum og eytt einhverjum tíma í verslunum fór liðið í sundlaugina í Gladsaxe til að láta þreytuna líða úr sér.

Á laugardagsmorgninum var farið og verslað í Maxwell GO! Custum Hockey Shop og þar virtust vera bleikir hokkýhanskar hvað vinnsælastir.  Eftir góða gönguferð um Strikið var farið til KSF í Österbro þar sem spilaðir voru tveir góðir leikir við

Morguninn eftir spiluðu strákarnir við Gladsaxe Bears og var það endapunkturinn á þessar stórskemmtilegu ferð til Danaveldis.  Í þessari ferð fengu 4.flokksmenn kynningu á því hvernig á að nota skrokkinn í íshokkí (Bodycontact) og 3 flokkurinn vann einn leik og tapaði einum.  Þetta var sérlega skemmtileg reynsla við aðalþjálfara SR þar sem strákarnir voru að spila við gömlu klúbbana þar sem Ed þjálfaði í Danmörku.  Dönunum þótti mikið til koma hve góðir okkar strákar voru og á hvaða getustigi þeir væru á. Á þriðjaflokks leiknum var gamall kunningi Eds, Mike Sirant, sem er landsliðsþjálfari Dana um þessar mundir.

Fyrir hönd foreldra, þjálfaranna Gumma, Todd og Ed viljum við senda bestu þakkir fyrir að gera þessa ferð sem ógleymanlegasta