Dags: 26.01.2007 15:50
SR-ingar munu taka vel á móti SA-mönnum sem eru í þann mund að leggja í langferð til Reykjavíkur. Þeir eru væntanlegir til borgarinnar einhverntíman á morgun. SR-ingar hafa verið sigursælir einsog handboltalandslið undanfarin misseri og ekki er útlit fyrir að einhver breyting verði þar á næstunni. Leikurinn verður spilaður í Skautahöllinni í Laugardal og hefst kl.20:00. Allir áhugamenn um íshokkí eru hvattir til að mæta á svæðið og hvetja sína menn áfram !! Áfram SR ...