Fréttir

Total items: 1194

MFL: Sigur á Bjarnarmönnum í gærkvöld ! - Nánar

Dags: 25.01.2007 09:39


Ekki virtist það hafa mikil áhrif á lið Bjarnarins að þeir höfðu orðið fyrir mikilli blóðtöku núna á undanförnum misserum. Í liði gærkvöldsins voru margir ungir leikmenn sem voru tilbúnir að láta ljós sitt skína. Strax í fyrstu lotu létu þeir til sín taka og eftir gott spil náði Sergei Zak að skora fyrsta mark leiksins. Stuttu síðar jafnaði Úlfar Jón Andrésson leikinn með góðu marki út frá frákasti. Þorsteinn "Sterki" Björnsson fylgdi svo í kjölfarið og áður en lotan var úti náði Daniel Kolar að bæta enn í fyrir heimamenn. Í öðrum leikhluta voru það Hjörtur Geir, sem hefur getið af sér gott orð í 2.flokki Bjarnarins, og Birgir Hansen sem skoruðu fyrir Björninn. Fyrir SR skoruðu Daniel Kolar, eftir hringsóla-vitleysu í varnarsvæði Bjarnarins, og Svavar Rúnarsson. Mark Svavars þótti sérstaklega skemmtilega útfært þar sem hann sigldi inn að marki Bjarnarmanna, plataði markmanninn, og þá virtist sem tími og rúm hægði á sér og Svavar renndi sér ögn lengra til þess eins að vera öruggur um að markmaður Bjarnarmanna hefði enga möguleika á að verja og síðan skaut hann pekkinum inn.
Önnur lotan var SR-ingum frekar þung þar sem nær helminginn af henni voru SR-ingar í boxinu.
Í þriðja leikhluta náðu þeir Steinar Páll Veigarsson og Þórhallur Viðarsson að auka enn forystuna fyrir SR, sá síðarnefndi með góðu slappskoti frá bláu línunni. Rétt um miðja síðustu lotu var skoraði síðan Mirek Krivanek nokkuð sérstakt mark þar sem hann skaut svo fast að pökkurinn endurkastaðist langleiðina að bláu línunni. Dómari leiksins, Andri Magnúsar heitins, sá ekki markið en glöggur línumaður, Leon Hafsteinsson, sá markið greinilega og gaf merki. Gott samstarf dómara þar á ferð. Sergei Zak náði síðan að minnka muninn fyrir Björninn eftir gott power-play-spil þar sem þeir voru einum manni fleiri.
Leikurinn endaði sem sagt 8 - 4 fyrir SR-ingum og sæti í úrslitum færist nær. SR þarf að vinna næstu 3 leiki til að tryggja sér heimaleikja rétt í úrslitum og á það er stefnan sett.
Næsti leikur er á laugardag kl.20:00 í Skautahöllinni í Laugardal. Allir mæta þangað að sjálfsgöðu!


Daniel Kolar 2/0
Þorsteinn Björnsson 1/2
Mirek Krivanek 1/2
Úlfar Jón Andrésson 1/0
Svavar Rúnarsson 1/0
Steinar Páll Veigarsson 1/0
Þórhallur Viðarsson 1/0
Stefán Hrafnsson 0/3
Gauti Þormóðsson 0/1

Brottvísanir SR: 34 min

Mörk/stoðsendingar Björninn:

Sergei Zak 2/1
Hjörtur Geir Björnsson 1/1
Birgir Hansen 1/0
Vilhelm Már Bjarnason 0/1

Brottvísanir Björninn: 28 mín.