Dags: 17.01.2007 16:21
Annar flokkurinn fylgdi fordæmi Meistaraflokksins um nýliðnahelgi og vann Björinn í viðureign sinni í gærkvöldi. Að sögn var leikurinn heldur langdreginn og fékk aldrei að fljóta einsog hokkíleikir ættu að fá að fljóta. SR-ingar náðu 5 - 1 forystu áðurn en einhver villuvandræði gerðu vart við sig og Bjarnarmenn náðu að nýta sér það tækifæri og skora ein tvö mörk áður en tíminn var úti. Lokastaðan var 5 - 3 SR-ingum í vil og verður það að teljast nokkuð gott þar sem þessi flokkur hefur ekki átt sjö dagana sæla á þessu tímabili. Núna eru þeir jafnir SAmönnum að stigum og allt er opið.