Fréttir

Total items: 1194

Sigur á nýju ári !

Dags: 15.01.2007 11:24


Meistraflokkur SR gerði góða ferð norður yfir heiðar núna á laugardaginn. Leikurinn var spilaður í miðju Bautamóti hjá fjórðu flokkunum félaganna.  Fljótt stimpluðu SR-ingar sig inní leikinn og skoruðu fyrsta mark leiksins og þar var að verki Stefán Hrafnsson eftir góðan undir búning Mirek Krivaneks og Steinar Páls Veigarssonar.  Stefán Hrafnsson var aftur að verki stuttu síðar og skoraði auðvelt mark eftir að Mireak og co voru búnir að sundur spila vörn SA-mann sem virtust vera áhorfendur í þessum fyrsta leikhluta leiksins. Daniel Kolar mætti svo enn við í fyrsta leikhluta eftir að hafa siglt einsog olíuprammi í gegnum vörn SA-manna og skellt pekkinum í netið hjá Ómari Skúlasyni.  SA-menn bitu frá sér í öðrum leikhluta þegar Björn Már Jakobsson skoraði með góðu skoti frá bláu línunni inn í markið fram hjá Birgi Erni Sveinssyni. Petr Krivanek og Þorsteinn Björnsson skoruðu fyrir SR-inga í annari lotu og juku enn á forskot SR-inga. Í þriðja leikhluta sváfu SR-ingar töluvert á verðinum og náðu SA-menn að minnka forskotið með góðum mörkum frá Jóni Gíslasyni og Elvari Jónsteinssyni.  Úlfar Jón Andrésson skoraði hinsvegar mikilvægt mark á síðustu mínútum leiksins og gulltryggði SR-ingum sigurinn á norðanmönnum.
Mörk/stoðsendingar SR:
Stefán Hrafnsson 2/0
Daniel Kolar 1/1
Úlfar Jón Andrésson 1/0
Petr Krivanek 1/0
Þorsteinn Björnsson 1/0
Gauti Þormóðsson 0/2
Mirek Krivanek 0/2
Steinar Páll Veigarsson 0/1

Brottvikningar SR: 62 mín.

Mörk/stoðsendingar SA: Jón Gíslason 1/2
Elvar Jónsteinsson 1/1
Björn Már Jakobsson 1/0
Orri Blöndal 1/0

Brottvikningar SA: 18 mín.