Dags: 07.01.2007 23:12

Úlfar Jón Andrésson, sem hefur æft og spilað með SR síðastliðin 10 ár eða svo, var valinn Íþróttamaður ársins í Hveragerði. Úflar er vel að titlinum kominn þar sem hann hefur staðið sig feyknar vel með 2.flokki SR, meistraflokki SR og landsliði Íslands skipað leikmönnum 20 ára og yngri. En á móti nýverið, sem haldið var í Rúmeníu, var hann valinn leikmaður íslenska liðsins í lok mótsins. Íshokkídeild Skautafélags Reykjavíkur óskar Úlfari til hamingju með titillinn.