Dags: 03.01.2007 18:20

Gauti nokkur Þormóðsson, sem er íshokkíáhugamönnum vel kunnur, hefur ákveðið að skella sér til Svíþjóðar og reyna fyrir sér með liðinu Mjölby. Liðið er einn af þeim klúbbum sem Emil Alengard, sem var valinn íshokkímaður Íslands nýverið, hefur spilað með við góðan orðstýr. Gaman verður að sjá hvernig kappinn stendur sig þar ytra og fylgjumst við grant með honum. Þetta verður án efa góð reynsa fyrir Gauta og það er búist við því að hann komi sterkur inn í úrslitinn og með A-landsliði Íslands á vordögum.