Fréttir

Total items: 1194

ISL-U20: Tap gegn Ungverjum og komandi átök

Dags: 16.12.2006 18:55


Íslendingar biðu afhroð gegn Ungverjum í leik sínum í gær. Ekki er hægt að draga fram marga ljósa punkta í leik íslendinga nema að þeir reyndu einsog þeir gátu að halda aftur af Ungverjum sem voru skipulagðari, agaðri, fljótari, sterkari heldur en Íslendingar. Leikurinn endaði 17 - 1 fyrir Ungverjum og verður það að teljast gríðarlega óhagstæð úrslit í móti sem þessu.

Á morgun spila Íslendingar við heimamenn, Rúmena, og fyrir fram er búist að Rúmenar muni bera sigur af hólmi. Þjálfarar liðsins hafa fulla trú á því að okkar menn geti staðið vel í rúmenum og jafnvel unnið leikinn. Leikurinn byrjar kl.17:30 að íslenskum tíma eða kl.19:30 að staðartíma.
Allir eru hvattir til að fylgjast vel með á vef IIHF www.iihf.com á morgun.

Áfram Ísland!!