Fréttir

Total items: 1194

ISL-U20: Sigur gegn Áströlum !

Dags: 12.12.2006 17:31


pc120075.jpg

Íslensku strákarnir sýndu stórleik gegn Áströlum í dag. Eftir rólegan fund hjá liðinu fór menn í leik-gírinn og undirbjuggu sig fyrir leikinn sem var spilaður kl.13:30 að staðartíma (kl.11:30 að íslenskum tíma). Strax í fystu lotu sýndu Íslendingar að þeir væru ekki á þeim buxunum að láta Ástrala ganga inn og skora hjá hinum vaska Aron Leví, sem stóð á milli stanganna í marki Íslendinga. Ekki tókst Íslendingum að skora í fyrsta leikhluta og var staðan jöfn 0 - 0 eftir fyrsta leikhluta.
Íslendingar voru fyrstir til að skora og var þar að verki Patrik Ericsson sem skoraði eftir gott sampil í Powerplay.
Ástralir náðu að jafna stuttu síðar. Í þriðju lotu var það Steinar Páll Veigarsson sem skoraði annað mark Íslands eftir mikinn hamagang fyrir framan mark Ástrala. Það sem eftir lifði leiks reyndu Ástralar að jafna leikinn hvað þeir máttu. Undir loka þriðja leikhluta tóku Ástralar markmann sinn af leikvelli og reyndu að freista þess að skora einum manni fleiri. Vörn Íslendina var sterk og lét Ástralana ekki komast of nálægt markinu. Undir endann fékk Emil Alengaard pökkinn og skaut honum á mark Ástrala og þangað fór pökkurinn inn við mikinn fögnuð og mikilli pressu létt af Íslendingum sem þurftu að spila skynsama vörn það sem eftir lifði leiks. Íslendingar enduðu sem sigurvegarar í þessum leik og einu skrefi nær því að halda sér í riðlinum. Á morgun munu strákarnir eiga frídag og er ætluninn að hvílast vel áður en leikir við Króatíu, Ungverjaland og Rúmena verða spilarðir.

Áfram Ísland!!