Dags: 29.11.2006 00:26

SR-ingar sóttu sigur í Bjarnargreipar síðastliðið þriðjudagskvöld. Eftir dapurt gengi gegn SA í síðustu þremur leikjum fór Meistaraflokkurinn í mikla og vandlega naflaskoðun og komu tífaldir til leiks... eða því sem næst.
SR-ingar byrjuðu einsog svo oft áður að opna markareikninginn í leiknum. Mirek Krivanek skoraði fyrsta mark leiksins eftir gott samspil þeirra bræðra Gauta og Egils. Mirek var afkastamikill í leiknum, 2 mörk og ein stoð, og bróðir hans einnig, Petr Krivanek sem einnig var með 2 mörk og eina stoð. Gauti Þormóðsson og Þorsteinn Björnsson komu þar næst á eftir með 1 mark og 2 stoð hver. Steinar Páll Veigarsson, Helgi Páll Þórisson, Todd Simpson voru með eitt mark hver. Þeir Egill og Pétur (pjakkarnir í flokkum, 16 ára gamlir) voru með sitthvora stoðsendinguna.
Allur meistaraflokkurinn sýndi það í þessum leik að jákvætt hugarfar og góður liðsandi er það sem skilar bestur árangri.
Leikurinn spilaðist heldur hægt þar sem töluvert var um brottvísanir og tóku þær oft heldur mikinn tíma. Eitthvað létu Bjarnarmenn dómara leiksins, Jón Heiðar Rúnarsson, fara í taugarnar á sér og létu oftar en ekki miður góð orð falla, og uppskáru í flestum tilfellum refsidóma.
Þegar leið á leikinnn áttu Bjarnarmenn erfitt með að hemja skap sitt, eftir mikinn fjölda brottvísana, og skeyttu skapi sínu á leikmönnum SR. Við þær athafnir uppskáru þrír leikmenn Bjarnarins Leikdóm, Match penalty, sem er brottvísun úr leiknum og einn leik í bann að auki. Eitthvað verður Jukka Iso-Antilla, þjálfari Bjarnarins, að fara í sambærilega naflaskoðun og Meistaraflokkur SR fór í ef þeir ætla sér að gera atlögu að sæti í úrslitum.
Núna er komið langt frí frá leikjum hjá Meistaraflokki SR eða þar til 7.janúar. Ekki er þar með sagt að meistaraflokkurinn sitji auðum höndum því að stór hluti meistaraflokknum, sem eru leikmenn yngri en 20 ára, eru að halda af landi brott til Rúmeníu til að keppa með landsliði Íslands skipað leikmönnum 20 ára og yngri. Hægt er að sjá nánar um það á www.ihi.is.