Fréttir

Total items: 1194

MFL: Leikjatvenna um helgina !!

Dags: 17.11.2006 13:56


img_0267.jpg

Meistaraflokkur SR mun spila tvisvar við SA um helgina.  Um er að ræða leikjatvennu þar sem spilaðir eru tveir leikir á jafnmörgum dögum.  Verður þetta þrekraun í meira lagi þar sem innan við 12 tímar líða frá því að fyrri leikurinn endar og seinni leikurinn hefst.  Akureyringar unnu síðasta leik sem var jafn og spennandi og úrslit réðust ekki fyrr en í síðasta leikhluta.  SR-ingar hafa æft vel  undanfarið og ekki er ólíklegt að Ed Maggiacomo geri fleiri línu breytingar til að mæta sókndjörfu SA mönnum.  Fyrri leikurinn hefst kl.19:00 í Skautahöllinni í Laugardal en seinni leikurinn hefst kl.10:00 á sunnudagsmorgun.

Þessa leiki mun Bob Langdon, sem er fyrrverandi dómari frá NHL, fylgjast með og þá sérstaklega störfum dómara í leiknum og umgjörð leiksins.

Allir eru hvattir til að mæta og hverja strákana áfram í þessum spennandi leikjum!!

Áfram SR !!