Dags: 15.11.2006 00:30
Annar flokkur SR mun spila við nágranna sína, Björninn í kvöld kl.19:45. Leikir þessara liða hafa verið hin besta skemmtun og er því vert að koma og horfa á þessa frísku stráka takast á. SR hefur ekki ennþá borið sigur af hólmi gegn Birninum í þessum flokki en allar vonir eru bundnar við það að í kvöld muni þeir gefa allt í leikinn. Ed Maggiacomo, aðalþjálfari liðsins, mun stilla upp sínu sterkasta liði þar sem allir leikmenn í þessum flokki eru heilir og klárir í slaginn.
Leikurinn byrjar sem sagt kl.19:45 og er í Skautahöllinni í Laugardal.
Áfram SR!!