Dags: 13.11.2006 13:08
Leikurinn um helgina var leikur markvarðanna. Þeir Birgir Sveinsson (SR) og Ómar Smári Skúlason (SA) skiptust á að verja hvert stórfærið á eftir öðru. Leikurinn var jafn og spennandi allan tímain svona einsog hokkíleikir eiga að vera.
Í fyrsta leikhluta var það hin borsmildi Daniel Kolar sem skoraði fyrir SR í powerplay. Ekki voru mörkinn fleiri í þeim leikhluta. Í öðrum leikhluta gekk mikið á hjá báðum liðum færin voru all mörg en SA menn höfðu betur í skotum á mark eða alls 18 skot á mót 8 okkar manna. SA-menn náðu ekki að nýta sér gullið tækifæri til að jafna leikinn þegar þeir höfðu drjúgan tíma 5 á 3 powerplay. Þar ber að þakka sterkrni vörn og topp markvörslu. Í þriðja leikhluta byrjuðu SA menn betur en okkar menn og náðu að skoða fljótt. Voru þar að verki Jón Gíslason með aðstoð Björns Jakobsson. Stuttu síðar náði Steinar Páll Veigarsson að koma SR-ingum fyrir eftir mikinn hamagang fyrir framan mark Akureyringa. Jón Gíslason og Tomas Fiala náðu síðan að skora fyrir SA og staðinn orðin því 3 - 2 Akureyringum í vil. Í enda lotunar freistaði Ed Maggiacomo, aðalþjálfari SR, að jafna leikinn og tók Birgi Sveinsson af ísnum og bætti við leikmanni í sóknina. En á loka sekúndum leiksins barst pökkurinn úr svæði SA-mann og í áttina að markmanslausu marki SR-inga. Elvar Jónsteinsson tók á rás, náði pekkingum og sendi hann á Sigurð Sigurðsson sem skilaði pekkinum inn í netið á síðasta sekúndubroti leiksins.
Leikur SA mann var til fyrirmyndar og náðu þeir að nýta tækifæri sín vel, þegar þau fengust. SR-ingar þurfa núna að fara í naflaskoðun og stilla saman strengi fyrir komandi átök sem verða um næstu helgi, þá koma SA-menn hingað suður og spila tvo leiki. Fyrri leikurinn verður á laugardagskvöldið og sá seinni verður á sunnudagsmorgni kl.10:00.
Mörk og stoðsendingar:
SA: Jón Gíslason 1/1, Björn Már Jakobsson 1/0, Sigurður Sigurðsson 1/0, Tomas Fiala 1/0, Elvar Jónsteinsson 0/1, Elmar Magnússon 0/1
SR: Daniel Kolar 1/0, Steinar Páll Veigarsson 1/0, Petr Krivanek 0/1, Þorsteinn Björnsson 0/1
Brottvísanir
SA: 20 mín
SR: 18 mín