Fréttir

Total items: 1194

Annasöm skautahelgi hafin !

Dags: 04.11.2006 02:28


Ekki er annað hægt að segja en að þessi helgi sé annasöm hjá skautafólki. Listskautafólk er búið að hertaka Skautahöllina í Laugardalnum, með þeim tækjum og tólum sem henni fylgja, þar til eftir hádegi á sunnudag vegna Haustmóts ÍSS. Þar af leiðandi verður engar æfingar hjá 6-7.flokki, 4.flokki og Skautaskóla :( á sunnudagsmorguninn.

Hvað sem því líður þá hafa Bjarinarmenn blásið í herlúðra og ákveðið að halda Oldboys mót í Egilshöll en þangað komu ein 4 erlend lið til þátttöku... nema SR-Oldies. Hægt er að sjá gang mála á www.bjorninn.com.

Norðan heiða verður hægt að fylgjast með karla og kvennahokkíi í bestu gæðum. Meistaraflokkur Bjarnarins mætir meistaraflokki SA í bæði karla og kvennaflokki. Sannir hokkíáhugamenn eiga ekki að láta sig vanta í Skautahöllina á Akureyri á laugardaginn.

Næsti leikur MFL SR verður næsta miðvikudag og þá taka þeir á mót nágrönnunum Birninum í Skautahöllinni í Laugardal.