Fréttir

Total items: 1194

Árshátíð SR !

Dags: 22.10.2006 14:31


Nú fer hver að verða síðastur !! SR árshátíðin verður haldin með fyrra fallinu þetta árið, eða laugardaginn 28.október,  þar sem ekki náðist að halda það í lok síðasta tímabils. Þeir sem hafa áhuga á að skemmta sér og öðrum á þessari árshátíð eru hvattir til að skrá sig hjá Birnu í netfangið kmaack@simnet.is. Árshátíðin verður haldin í Iðusölum, Iðunni Lækjargötu, og er miðaverð einungis kr.5000 per manninn.  Allir félagsmenn, orðnir 18 ára og eldri, eru velkomnir.  Sérstaklega eru foreldrar leikmanna hvattir til að koma þar sem þetta er fyrirtaks vettvangur til að kynnast félaginu og  því góða fólki sem fyrir og í því starfar.
  Matseðillinn er sem hér segir:

Forréttir
Villisveppasúpa eða Rækjukokteill á gamla mátann
Aðalréttir
Fylltar grísalundir með sautern-ávöxtum, mjúkri parmesanpolentu
og appelsínumarineruðu grænmeti
Eftirréttir
Volg súkkulaðikaka með pistasíuís og blönduðum berjum   Skemmtiatriði verða í höndum valinkunnra manna og óvæntir gestir kíkja í heimsókn.
Þeir sem hafa áhuga á að koma með eitthvað skemmtiatriði eða erindi inná árshátíðina eru hvattir til að senda tölvupóst á helgipall@skautafelag.is og kynna það sem þeir/þau vilja gera. Að vanda verður gríðarlega glæsilegt happadrætti og fer engin heim tómhentur.   Húsið opnar kl.18:30 og borðhald hefst kl.19:30    Áfram SR !!