Fréttir

Total items: 1194

2FL: Björninn gegn SR í Egilshöll í kvöld!

Dags: 03.10.2006 11:49


2.flokkur SR, lið skipað leikmönnum fæddir ´87 og yngri, mun keppa við Björninn í Egilshöll.  Leikurinn hefst kl.20:00 og eru allir hvattir til að mæta og fylgjast með strákunum okkar keppa.  SR-ingum gekk ekki vel á móti Birninum síðast þegar þessi lið öttu kappi en SR-ingar hafa æft vel síðan og eru farnir að lýta nokkuð sannfærandi út.  Án efa verður þessi leikur spennandi og eru því allir hvattir til þess að mæta í Egilshöll og hvetja þá áfram.