Dags: 29.09.2006 14:26

Lítið fór fyir Íslandsmeistara-töktum í leik SR við Björninn á
þriðjudaginn var. Orkulausir og óagaðir SR-ingar máttu sín lítils
á móti hressu og sterku liði Bjarnarins sem náðu að nýta sínar
skyndisóknir vel og náðu oft á tíðum að komast 2, 3 og jafnvel 4 á móti
2 varnarmönnum SR sem höfðu í nóg að snúast. Markmaður SR, Aron
Leví Stefánsson, stóð vaktina vel og varði oft á tíðum ævintýralega með
griphanskanum, sem er hans aðalsmerki.
Björninn
hafði undirtökin nær allann tímann en SR-ingar náðu oft á tíðum góðum
sóknum sem ekki tókst að nýta nægilega vel. Leikar fóru 6 - 3 fyrir
Birninum. Það er nokkuð ljóst að SR-ingar þurf að taka sig saman í
andlitinu ef þeir ætla sér að gera alvarlega atlögu að
Íslandsmeistaratitlinum í ár. En nóg er af leikjum og stigum í
pottinum þannig að ekki er þörf á að örvænta strax. Þeir sem skoruðu fyrir SR voru
Þorsteinn Björnsson, Gauti Þormóðsson og Mirek Krivanek.
Hægt er að sjá myndir úr leiknum hér