Dags: 26.09.2006 23:47

Það er óhætt að segja að það ríki eftirvænting í herbúðum SR-inga í dag því að það er hokkídagur í dag. SR-ingar eru búnir að æfa stíft undanfarið og eru að komast í þokkalegasta leikform. Leikurinn í kvöld er fyrsti leikur meistaraflokksins í vetur og verður hann eflaust áhugaverður ekki síst fyrir það að þessi lið mæta núna með fá útlendinga og verður það að vera góðs viti. Björninn hefur spilað einn leik á móti SA og endaði hann með naumum sigri þeirra síðarnefndu eftir dramatíska framlengingu og gullmark skorað af yngsta leikmanni liðsins. Björninn barðist hinsvegar vel allan leikinn á voru með hann í raun í hendi sér nær allan tímann. SR-ingar hafa tekið þetta inní dæmið og ætla að reyna spila af skyn og eljusemi.
Aron Leví Stefánsson, sá sem stóð á milli stanganna í úrslitaleiknum í fyrra, mun standa ennþá á milli stangana í kvöld þar sem Birgir Örn Sveinsson er að taka út leikbann sem hann hlaut á síðsta tímabili fyrir að veifa kylfunni heldur ótæpilega.
Todd Simpson mun spila sinn fyrsta leik fyrir SR í þessum leik og verður fróðlegt að sjá hvernig hann stendur sig í vörninni. En að vanda munu þeir vanalegu leikmenn standa vaktina á móti gríðarlega fersku liði Bjarnarins.
Leikurinn hefst kl.19:30 í Egilhöll ... Ekki missa af því ....
Áfram SR!!