Dags: 04.09.2006 15:05

Þar sem leikjadagskráinn er farinn að taka á sig mynd er ekki seinna vænna en
að kíkja á hvað er framundan í mánuðinum. Fyrsti leikur félagsins verður í 2.flokki
þann 13. sept. við Björninn. Verður þetta án efa spennandi leikur þar sem keppt
er eftir nýju fyrirkomulagi. Leikir í þessum aldrusflokki hafa oftar en ekki verið meira spennandi heldur
en Meistaraflokksleikir þar sem bæði þessi lið tefla fram sprækum og góðum leikmönnum.
Hefst leikurinn kl.19:15 og verður í Skautahöllinni í Laugardal.
Fyrsti leikur Meistaraflokksins verður við Narfa norður á Akureyri þann 16.september.
Ekki er komin nákvæm tímasetning á þennan leik en ekki er orðið alveg ljóst hvort
að Narfi nái að tefla fram liði í vetur. Mun það allt koma í ljós bráðlega.