Fréttir

Total items: 1194

Barist um Stanley Bikarinn í NHL!

Dags: 18.06.2006 23:16


commodore.jpg

Þeir eldheitu áhugamenn sem hafa verið að fylgjast með NHL undanfarin misseri hafa eflaust dáðst að þeirri baráttu sem Edmonton Oilers hafa sýnt í þessari úrslitakeppni. Fyrir síðasta leik, sem var síðastliðið laugardagskvöld, voru Edmonton undir í bráttunni 2 - 3 gegn Carolina Hurrecanes. Leikinn á laugardagskvöldið unnu Edmonton sannarlega með gælsilegum sigri 4 - 0. Var lið Carolina illa undirbúið, aga og andlaust gegn sterkum leikmönnum Edmonton.

Þannig að staðan er orðin 3 - 3 í seríunni og leikurinn á mánudagskvöldið verður hreinn úrslita leikur um Stanley Bikarinn og leikmenn beggja liða eru ekki á því að gefa þumlung eftir. Ef Edmonton vinnur leikinn verður það annað liðið í sögu NHL sem er 3 - 1 undir í seríunni og nær að vinna sig upp og sigra Bikarinn. Aðeins Toronto Maple Leafs hafa gert það og það var árið 1942. Þannig að það verður til mikils að vinna fyrir Edmonton. Hinsvegar eru leikmenn Carolina ekki á því að láta niðurlægja sig á heimavelli í þessum síðasta leik seríunnar.

Þeir sem eru með NASN (SKjárinn) geta fylgst með þessum leik í sjónvarpinu en ekki er ólíklegt að meistaraflokkur SR taki sig saman og hittist einhverstaðar til að horfa á leikinn.... meira um það síðar.