Dags: 02.06.2006 22:14

Andy Luhovy, leikmaður SR á nýliðnu tímabili, er að gera góða hluti með liði sínu Sydney Bears í Ástralíu. Á síðasta tímabili, í Ástralíu, var hann stigahæsti maður ásamt því að vera með flest mörk fyrir sitt lið. Ekki virðist dvölin hans hjá SR gert honum illt því að hann hefur greinilega mætt fílelfdur til Ástralíu þar sem hann er nú þegar orðin einn af stigahæstu mönnum deildarinnar. Hann er búin að skora ein 10 mörk í 6 leikjum og eiga einar 8 stoðsendingar sem hafa gefið mark.
Það er nokkuð ljóst að hér er á ferð leikmaður sem er í topp klassa og er það von, þess sem skrifar, að hann komi aftur hingað á klakann og taki eitt tímabil í viðbót með okkur í SR.
Þeir sem vilja fylgjast með honum, stigalega séð geta farið á heimasíðu Sydney Bears eða skoðað nánari tölulegar upplýsingar á heimasíðu Ástralska íshokkísambandsins