Fréttir

Total items: 1194

Uppskeruhátíð

Dags: 03.05.2006 16:59


Þar sem öllum æfingum og leikjum er nú lokið hjá SR er rétt að huga að því hvernig binda megi formlega endi á gott og skemmtilegt tímabil. Undanfarin ár hefur íshokkídeild SR staðið fyrir árshátíð sem haldin hefur verið í maí, en nú hefur verið ákveðið að færa hana fram á haustmánuði. Í staðinn hvetjum við alla til að mæta á lokahóf ÍHÍ sem haldið verður laugardaginn 13. maí að Versölum við Hallveigarstíg. Þarna er um að ræða eins konar uppskeruhátíð einsog tíðkast innan íþróttahreyfingarinnar, þar sem menn úr öllum íshokkídeildunum fagna saman undir borðhaldi. Sjá nánar uppl á vef ÍHÍ (sjá hér).