Dags: 01.05.2006 18:32
Í lok leiks Íslendinga og Tyrkja á laugardagskvöldið voru verðlaun veitt til leikmanna sem taldir voru skara fram úr á mótinu. Íslendingar áttu þar tvo verðlaunahafa því Emil Alengard var valinn mikivægasti leikmaður mótsins ("MVP") og Ingvar Þór Jónsson besti varnarmaðurinn. Besti markmaðurinn var valinn Michel Welter frá Lúxemburg og besti sóknarmaðurinn Gevork Khandaharyan frá Armeníu. Stigahæsti leikmaðurinn var síðan Cengiz Ziplak frá Tyrklandi með 14 stig.