Dags: 27.04.2006 23:31
Íslendingar mættu spútnik liði Armena í gærkvöldi í Laugardalnum í leik sem reyndi virkilega á þolrif áhorfenda og þá jafnframt leikmanna. Ísland vann leikinn 5 - 4 eftir mikið andstreymi. Armenar komu gífurlega ákveðnir til leiks, fullir af krafti og sjálfstrausti sem sló íslensku leikmennina nánast út af laginu, sem áttu fullt í fangi með að ráða við vinnusemina og leikgleðina sem geislaði af Armenum. Þrátt fyrir að Ísland sækti meira og gerði stundum harða hríð að marki Armena í fyrstu lotu varð strax ljóst að þetta yrði langt kvöld fyrir Íslendinga. Skyndisóknir Armena voru mjög hættulega þar sem fremstir fóru í flokki þeir Kandakharyan og Balyan en Íslendingar áttu oft í erfiðleikum með að ráða við hraða þeirra. Eins voru "power-play" þeirra vel útfærð og mjög hættuleg, og enn eina ferðina mættu Íslendingar markmanni í banastuði. Fyrsta lota var erfið Íslendingum en Armenum tókst að skora tvívegis án þess að Ísland næði að svara fyrir sig, þrátt fyrir sífellda stöðuyfirburði. Önnur lota hófst með sama barningnum og sú fyrri hafði endað og það lá í loftinu að eitthvað sérstakt þyrfti að gerast til að Íslendingar næðu að brjóta ísinn. Og þetta "sérstaka" var fyrirliðinn Ingvar Þór Jónsson; eftir að hafa átt gott skot á markið náði hann aftur pekkinum með mikilli baráttu og skaut aftur bylmingsskoti sem rataði alla leið í markið við gífurlegan fögnuð hinna fjölmörgu áhorfenda sem fylgdust með leiknum. Staðan því 1 - 2 þegar 10 mín voru liðnar af annarri loti. Í kjölfarið kom svo jöfnunarmarkið frá Guðmundi Ingólfssyni og Armenar komnir í mikið uppnám. Í stað þess að nýta sér vonleysið og einbeitingarleysið í röðum Armenna á þessari stundu tóku Íslendingar á sig nokkur brot sem sendu leikmenn í skammarkrókinn. Við þetta riðlaðist pressa Íslendinga og Armenar náðu að jafna sig á áfallinu. Staðan 2 - 2 eftir tvær lotur. Í þriðju lotu tók Ísland loksins að sýna sínar réttu hliðar með meiri baráttu, hraða og betri sendingu, en þrátt fyrir ágætisleik voru það Armenar sem óvænt komust yfir, 2 - 3, eftir einbeitingarleysi í varnarleik þar sem frákast var ekki hreinsað. Markið kom eins köld vatnsgusa yfir áhorfendur en enn og aftur var það Ingvar fyrirliði sem sá um að koma leiknum aftur í jafnvægi fyrir Ísland með glæsilegu þrumuskoti úr teignum aðeins einni mín. seinna- ótrúlegt mark! Ísland fylgdi markinu eftir með marki frá Rúnari Rúnarssyni og síðan með skemmtilegt mark frá Jónasi Breka með bakhandarskoti. Staðan 5 - 3 fyrir Ísland og um 3 mín. eftir af leiknum. Armenar pressuðu aðeins undir lokin og náðu að klóra í bakkann með einu marki um einni mín fyrir leikslok og þar við sat.
Leikur íslenska liðsins var kaflaskiptur og dró dám af því að Armenar voru mun sterkara lið en Lúxemburg og Írland. Í raun er lið Armena mjög gott, og allt annað en það lið sem heimsótti okkur fyrir tveimur árum síðan er Ísland vann 30 - 0. Þeir eru baráttuglaðir og með nokkra fljóta leikmenn, en umfram allt er liðið mjög vel samhæft og leikmenn með ótrúlega góðan leikskilning og staðsetningar. Þessi óvænta mótspyrna kom Íslendingum í opna skjöldu - kannski hefði átt að undirbúa liðið betur undir það að taka á móti sterkara liði. Hins vegar er ekki óraunhæft að gera ráð fyrir að meira hefði átt að nást út úr íslenska liðinu í þessum leik miðað við þann mannskap sem það hefur á að skipa. Í liðinu eru margir stórgóðir einstaklingar og breiddin aldrei verið meiri. Þetta ætti kannski að skila sér betur í leik liðsins, og þá ekki síst í leikskipulagi, vali í línur og innáskiptingum, ásamt þéttari varnarleik. Enn og aftur voru það þeir Emil, sem kosinn var maður leiksins, og Ingvar sem áttu stórleik. Emil fór hægt af stað en náði sér virkilega á strik í 3. lotu. Leikur Ingvars var ákaflega sannfærandi og frammistaða hans var ljóslifandi dæmi um það hvað felst í því að vera fyrirliði, að brjóta ísinn þegar mest á reynir. Á laugardaginn mæta Íslendingar svo Tyrkjum og er alveg víst að íslensku leikmennirnir vilja vinna þann leik með glæsibrag og þar með vinna deildina. Þeir hafa getuna til þess. Áfram Ísland!
Mörk og stoðsendingar (liggur ekki fyrir)