Dags: 26.04.2006 09:33
Það bjuggust fáir við því að Armenar myndu veita Írum einhverja mótspyrnu er liðin mættust í gærkvöldi í Laugardalnum. Armenar, sem áður höfðu tapað 8-3 fyrir Tyrkjum, mættu ákveðnir til leiks og nýttu sér kraftleysi Íranna og komust í 4-0 áður en Írar fóru í raun að sýna eitthvað, en þá var komið undir lok annarrar lotu. Fram að því höfðu Armenar leikið mjög vel og skipulega. Forysta Armena var þó of mikil fyrir Íra sem virtust ekki hafa t´ru á því að hægt vær að vinna upp muninn. Armenar bættu hins vegar tveimur mörkum við og endaði leikurinn 6-0. Mjög óvænt úrslit svo ekki sé meira sagt en þetta var víst fyrsti sigur Armena í landsleik í íshokkí. Skemmst er að minnast þess er lið Armena lék við Ísland fyrir tveimur árum síðan en þeim leik lyktaði með 30-0 sigri okkar manna. Síðan þá hefur þeim mikið farið fram, og hafa auk þess styrkt lið sitt verulega með leikmönnum af armenskum uppruna er búa í BNA. En það verður ekki af þeim tekið að þeir léku af skynsemi og höfðu mikinn leikskilning, enda sáust t.d. oft stórgóð tilþrif í sendingum hjá þeim. Írarnir verða hins vegar að taka sig á.