Dags: 25.04.2006 00:49
Það er óhætt að segja að Ísland hafi byrjað HM með glæsilegri spilamennsku er þeir mættu Lúxemburg í fyrsta leik sínum í gærkvöldi. Þetta var þó all sérkennilegur leikur því að var þó ekki fyrr en skammt var eftir af leiknum er Ísland tókst að tryggja sér öruggan sigur, 5-2, þrátt fyrir að hafa yfirspilað Lúxemburg lengst af. Ísland pressaði Lúxemburg stíft nánast allan leikinn, voru miklu fljótari í alla pekki og létu pökkinn fljóta vel á milli manna, en þrátt fyrir all mikla yfirburði á ísnum tókst þeim þó ómögulega að ráða við stærstu hindrunina, markvörð Lúxemburg. Hvað eftir annað varði hann skot Íslendinga, oft úr dauðafærum og virtist sem leikmönnum íslenska landsliðsins væri fyrirmunað að skora fram hjá þessum stórbrotna markverði. Staðan 0 - 0 eftir fyrstu lotu, þrátt fyrir nær einstefnu Íslendinga. Það var því algerlega gegn gangi leiksins er Lúxemburg skoraði fyrsta marks leiksins er skammt var liðið af annarri lotu, eftir hraðaupphlaup. Íslendingar létu markið ekki á sig fá og héldu pressunni sem leiddi til þess að Daniel Eriksson tókst að jafna leikinn með laglegu marki. Nú héldu flestir áhorfendur að ísinn væri brotinn en svo var ekki. Markvörður Lúxemburg, Welter Michel, hélt uppteknum hætti en Brynjar Þórðarson tókst svo loksins að koma Íslendingum yfir með glæsilegu bakhandarskoti upp í markvinkilinn - sennilega eini veiki bletturinn hjá markverði Lúxemburg. Forystan var þó skammgóður vermir því Lúxemburg náði að jafna leikinn með langskoti sem Birgir Örn Sveinsson markvörður hefði átt að taka - hann átti þó rækilega eftir að bæta fyrir þessi mistök seinna í leiknum. Markið var mikið áfall fyrir Íslendinga og hina fjölmörgu áhorfendur sem fylltu höllina. Ekki tókst Íslendingum að ná aftur forystunni í annarri lotu og staðan því 2 - 2. Eftir góðu rispu gestanna í upphafi þriðju lotu héldu Íslendinga áfram að yfirspila Lúxemburg, en án nokkurs árangurs. En það átti eftir að breytast; 5 mín fyrir leikslok og manni færri náði Emil Alengard pekkinum í varnarsvæði Íslendinga og einlék upp allan ísinn og lagði pökkinn snyrtilega framhjá markverði Lúxemburg og náði þar með aftur forystu fyrir Ísland. Með þessu einstaklingsframtaki sýndi Emil hversu stórefnilegur leikmaður hann er og mikill hvalreki á fjörur okkar Íslendinga. Við markið gáfu Lúxemburg loksins eftir, einsog allur vindur væri úr þeim. Þetta nýttu Íslendingar sér og Gauti Þormóðsson sem bætti við fjórða markinu fyrir Ísland, eftir hraðaupphlaup. Gauti var svo aftur á ferðinni á síðustu mín. leiksins er hann afgreiddi pökkinn snyrtilega í markið eftir frábæran undirbúning og leikskilning hjá Rúnari Rúnarssyni. Lokastaðan því 5 - 2.
Leikur Íslands var stórgóður og endurspeglaði hversu liðið hefur á að skipa öflugum leikmönnum. Hraðinn var mjög mikill og samspil gott, helst að varnarleikurinn hafi á stundum verið svolítið kæruleysislegur, sem kannski skýrðist af takmörkuðum sóknartilburðum og áskorun frá Lúxemburg. Eins hefðu varnarmenn mátt ógna meira frá bláu línunni, en það lagaðist nokkuð í þriðju lotu. Þá var markvarsla Birgis mjög góð þegar á reyndi í lok leiksins er Ísland var einum færri, en í þrígang varði hann glæsilega í stöðunni 3-2. Lið Íslands er samsett af nokkrum reyndum leikmönnum og síðan stórgóðum, ungum leikmönnum. Maður leiksins var kosinn Brynjar Þórðarson, sem lék af smitandi útgeislun og krafti allan leikinn - gríðarlega mikilvægur leikmaður. Síðan má t.d. nefna ungu mennina Gauta, Daníel, Patrik og Emil, sem sýndu að íslenska liðið á bara eftir að batna á næstu árum. Þá var fyrirliðinn, Ingvar Þór Jónsson, mjög traustur í vörninni. Umfram allt var þetta þó sigur liðsheildarinnar og stemningarinnar því aldrei gáfust okkar leikmenn upp né létu fara í skapið á sér markvörsluna hjá hinum stórgóða markverði Lúxemburg, sem var tvímælalaust maður leiksins.
Mörk og stoðsendinga hjá Íslandi: Gauti Þormóðsson 2/0, Brynjar Þórðarson 1/0, Daníel Eriksson 1/0, Emil Alengard 1/0, Björn Már Jakobsson 0/1, Guðmundur Björgvinsson 0/1, Jónas Breki Magnússon 0/1, Jón Ingi Hallgrímsson 0/1 og Rúnar Rúnarsson 0/1.
Mörk og stoðsendingar hjá Lúxemburg: Berens 1/0, Schons 1/0 og Scheier 0/1.