Dags: 11.04.2006 22:51

Það vakti almenna kátínu er Ed þjálfari SR birtist uppáklæddur í bleikum fötum strax að úrslitaleiknum loknum er SR tryggði sér Íslandsmeistaratitilínn í karlaflokki um síðustu helgi. Ekki var ástæðan sérkennilegur fatasmekkur Eds heldur hitt að hann hafði lofað leikmönnum meistaraflokks að klæða sig í bleik föt skyldi liðið taka titilinn þetta kvöld, en bleikur litur er víst ekki hans uppáhaldslitur. Og auðvitað stóð hann við stóru orðin eins og hann er þekktur fyrir!