Dags: 09.04.2006 22:58
Það var mikil stemmning í Laugardalnum er SR-ingar fögnuðu í gærkvöldi Íslandsmeistaratitlinum í íshokkí karla fyrir framan fjölda áhorfenda og stuðningsmanna, er þeir báru sigurorð af SA í þriðja úrslitaleiknum um titilinn, 10 - 4. SR vann því úrslitakeppnina 3-0, en áður höfðu þeir lagt SA 8-1 og 7-4. Þetta er glæsilegur árangur hjá SR og kemur í kjölfarið á öruggum sigri þeirra í deildinni en þar unnu þeir 17 leiki en töpuðu aðeins einum. Við óskum strákunum til hamingju með titilinn sem er sá fyrsti hjá SR síðan árið 2000.
Leikurinn í gærkvöldi var bráðfjörugur og skemmtilegur. SR opnaði markareikning sinn með góðu einstaklingsframtaki hjá Andy og hann bætti síðan öðru við með því að fara aftur fyrir markið og læða honum inn á fjærstöngina. Zdenek bætti svo við þriðja marki SR með því að breyta laglega stefnu skots frá Mirek. Andy bætti svo enn einu markinu við áður en fyrsta lota var úti, og staðan 4-0 fyrir SR. Í annarri lotu tók við þessi sígildi kafli hjá SR þar sem andstæðingnum er leyft að pressa stíft og lítið brá fyrir góðu spili. Helgi Páll náði þó að skora úr þvögu en SA náði síðan að brjóta ísinn með marki frá Jóni Inga og staðan því 5-1 fyrir SR. Mirek jók svo aftur muninn í 5 mörk með glæsilegu úlnliðsskoti í samskeytin. Marian lagaði svo stöðuna fyrir SA áður en annarri lotu lauk, staðan 6-2 fyrir SR. Í þriðju lotu skoraði Andy aftur, en nú úr hraðaupphlaupi eftir glæsilegan undirbúning hjá Gauta. Þorsteinn bætti svo enn einu marki við fyrir SR með góðu marki úr hraðaupphlaupi og staðan því orðin 8-2 fyrir SR þegar 14 mín voru eftir, og leikurinn því nánast búinn. SR slakaði aðeins á þessar síðustu mínútur, enda sjálfsagt komnir með hugann við bikarinn. Það sem eftir lifði leiks bætti SA við tveimur mörkum, frá Lubomir og Clark, og SR einnig með tveimur mörkum frá Zdenek og Úlfari, og öruggur sigur í höfn.
Allir leikmenn SR eiga hrós skilið fyrir góða frammistöðu. Af öðrum ólöstuðum átti Andy stórleik sem og Aron, markvörður, sem þurfti að taka við því erfiða hlutverki að stökkva inn í liðið í úrslitaleik vegna leikbanns Birgis, aðalmarkvarðar SR. Þá var vörnin mjög góð og yfirveguð og þá sérstaklega Guðmundur sem átti frábæran leik. En umfram allt var þetta sigur liðsheildarinnar. Leikmenn SA áttu einnig góðan dag, þrátt fyrir tapið, og sérstaklega tóku þeir við sér og sýndu hvers megnugir þeir eru eftir að þjálfari þeirra var rekinn í sturtu leikur þeirra lyftist allur við brotthvarf hans.
SR-ingar fögnuðu gríðarlega í leikslok enda voru þeir að uppskera laun erfiðisins í vetur sem hefur verið bæði langur og strangur; undir stjórn Eds þjálfara hefur liðið æft mjög mikið, leikmenn mætt vel á æfingar og tekið á undir strangri stjórn þjálfarans. Miklu skipti fyrir SR að geta teflt fram mikilli breidd í leikjum vetrarins sem sást m.a. á því að liðið átti mjög jafna leiki í vetur og féll sjaldan kylliflatt vegna þreytu eða áhugaleysis. Liðið er auk þess góð blanda af mjög sterkum útlenskum leikmönnum, eldri reynsluboltum og ungum, efnilegum strákum. Ekki má gleyma því að liðið hafði mjög góðan fyrirliða, Helga Pál, sem tókst að fylla það skarð sem Ingvar, fyrirliði SR, skyldi eftir sig er hann fór til Danmerkur. Helgi Páll hélt liðinu saman og leiddi það til sigurs.
Mörk og stoðsendingar:
SR: Andy 4/0, Zdenek 2/2, Mirek 1/3, Úlfar 1/1, Helgi Páll 1/0, Þorsteinn 1/0, Gauti 0/1 og Svavar 0/1.
SA: Lubomir 1/2, Clark 1/1, Jón Ingi 1/0, Marian 1/0 og Arnþór 0/1.