Fréttir

Total items: 1194

Björninn vann einvígið um bronsið

Dags: 09.04.2006 12:44


Björninn og Narfinn mættust í tveimur úrslitaleikjum nú um helgina til að skera úr um það hvaða lið hlyti bronsverðlaunin í Íslandsmóti karla. Björninn vann fyrri leikinn 7-1 og þann seinni 6-2. Í kvöld mæta svo SR-ingar norðanmönnum í SA í þriðja leiknum um Íslandsmeistaratitilinn og nægir SR sigur í þeim leik til að tryggja sér titilinn í fyrsta sinn síðan 2000. Það verður því athyglisvert að sjá hvort SR nær að komast alla leið í þetta skiptið.