Dags: 06.04.2006 20:41
Í gærkvöldi mætti SR norðanmönnum í SA í öðrum úrslitaleiknum um Íslandsmeistaratitilinn, en þessi leikur fór fram á Akureyri. Leikurinn var mjög jafn og spennandi lengst af, SR þó ávallt fyrri til að skora án þess þó að geta slitið sig frá heimamönnum. Augljóst var að SA ætlaði ekki að láta útreiðina úr síðasta leik slá sig út af laginu. Það var ekki fyrr en í þriðju lotu sem dró í sundur með liðunum er SR gerði 3 mörk en SA eitt, en leikurinn endaði 7 - 4 fyrir SR. Óhætt er að segja að Tékkarnir tveir í liði SR hafi farið á kostum í þessum leik, og þá sérstaklega Mirek sem var með þrjú mörk og tvær stoðsendingar og átti frábæran leik.
Nokkuð mikið var um brottrekstra, og þar fór fremstur í flokki þjálfari SA sem lenti 7 sinnum í skammarkróknum. Þá fékk markmaður SR, Birgir Örn, brottrekstur sem sendir hann í leikbann í næsta leik, en þetta er annað leikbannið sem SR fær á sig í þessari úrslitakeppni, en áður hafði Rúnar Rúnarsson fengið leikbann.
Nú er staðan í einvíginu 2 - 0 fyrir SR og nægir því SR-ingum einn sigur enn til að hampa Íslandsmeistaratittlinum í ár. Næsti leikur er á sunnudagskvöldið í Laugardalnum og geta úrslitin því ráðist þar. En það kemur í ljós.
Mörk og stoðsendingar:
SR: Mirek 3/2, Zdenek 2/2, Andy 1/0, Steinar Páll 1/0, Stefán 0/3 og Ágúst 0/1
SA: Jón G 2/0, Jan 1/0, Steinar 1/0, Clark 0/2, Lubomir 0/1 og Marian 0/1.
(1-2)(2-2)(1-3)
Leiknum lokið með góðum sigri SR, 7-4, eftir æsispennandi leik.