Dags: 01.04.2006 11:20
Um næstkomandi helgi, dagana 8. og 9. apríl verður Laugardalsmót yngri flokka haldið á vegum SR í Skautahöllinni í Laugardal. Þetta mót, sem haldið er fyrir 5. til 7. flokk, átti upphaflega að vera um þessa helgi en af óviðráðanlegum ástæðum gekk það ekki upp, enda skautahöllin í Laugardal vinsæll vettvangur og þétt setin fyrir íþróttir á ís. Því þurfti að færa mótið aftur um eina helgi. Við vonum að það komi ekki að sök og að sem flestir eigi þess kost að mæta um næstu helgi. Dagskrá mótsins verður birt hér von bráðar.