Dags: 30.03.2006 18:23
Í maí og júní mun SR halda úti sumaræfingum fyrir alla leikmenn SR, en þessum æfingum stýrir Ed Maggiacomo, aðalþjálfari SR. Þessar sumaræfingar eiga að hjálpa leikmönnum til að auka styrk sinn, þol og líkamsburði, svo að þeir njóti þess enn betur að spila íshokkí þegar næsta tímabil hefst í haust. Með því að nota valdar æfingar og þjálfunaraðferðir er hægt að þjálfa upp eiginleika til að ná meiri snerpu og betra viðbragði sem skilar sér í meiri hreyfanleika og tækni, auknum sprengikrafti og betra jafnvægi á skautunum. Ennfremur verður lögð áhersla á almennar tækniæfingar. Dagskrá þessara æfinga er birt hér á heimasíðunni en þær hefjast 3. maí (sjá til hliðar)